RaRaspberry Mojito 0.0%

Óáfeng upplifun í sérflokki

Raspberry Mojito 0.0% var upphaflega þróað sem sérlausn fyrir Sky Lagoon þar sem markmiðið var skýrt: að bjóða baðgestum fullkomna kokteilupplifun án áfengis.

Útkoman varð ferskur og líflegur kokteill þar sem safarík hindber, ferskt lime og náttúruleg mynta mætast í jafnvægi með mildri freyðingu sódavatns. Bragðið er hreint, ferskt og flókið og með sama karakter og klassískur mojito, bara 0.0%.

Engin gervibrögð, engin rotvarnarefni, engin málamiðlun í hráefnavali.

Drykkurinn er forblandaður í 20L kútum og skilar 133–200 skömmtum með stöðugum gæðum í hverju glasi. Lausnin hentar stöðum sem vilja bjóða upp á vandaðan óáfengan valkost sem selst hratt og tryggir að allir gestir upplifi sig sem hluta af stemningunni.

Vegan, glútenlaust og laus við gerviefni.

Óáfengur, en aldrei bragðlaus.
Bættu Raspberry Mojito 0.0% við drykkjarseðilinn og lyftu óáfenga úrvalinu á nýtt stig.

 
 
 

innihaldsefni

Mexíkóskur limesafi, breskur hindberjasafi, mynta og reyrsykur.

Hentar vegan. Engir gervilitir, rotvarnarefni eða ger. Glútenlaust.

Raspberry Mojito kúturinn inniheldur ekkert áfengi.